Stjarna Indlands

300 g rækjur
1 laukur
30 g smjör
2-3 tsk karrí
1 epli í teningum
1 græn paprika í teningum
½ dl vatn
½-1 teningur fiskkraftur
½ msk tómatsósa
¼ l rjómi
¼ tsk paprikuduft
½ tsk salt

Saxið laukinn smátt og látið krauma í smjörinu. Bætið karríi út í og látið krauma í eina mínútu. Látið epli, papriku og paprikuduft út í og látið sjóða við vægan hita undir loki í 10-15 mínútur. Bætið vatni, tómatsósu og fiskkrafti saman við og sjóðið í 2-3 mínútur. Bætið rjómanum við og sjóðið í 5 mínútur. Látið rækjurnar út í heita sósuna og hitið – ekki sjóða.

Berið fram með hrísgrjónum og ristuðu brauði.